|

Umskipunaröfn í Loðmundarfirði
Það er ekki ný hugmynd að flutningar kunni
að
færast af núverandi leiðum frá austur Asíu og yfir á heimskauta
svæðið. Þá hefur Ísland oft verið nefnt sem hugsanlegur kostur
fyrir umskipunarhöfn. Langanes hefur verið sú staðsetning
sem horft hefur verið hvað mest til þegar umskipunarhöfn er rædd
sem þjónusta eigi stór skip sem koma til með að nýta sér þessa
mögulegu nýju siglingaleið um Íshafið. Einnig hafa verið
ræddar hugmyndir um slíka höfn í Eyjafirði, Reyðarfirði,
Hvalfirði auk Dýrafjarðar og Arnarfjarðar.
Talsverð vinna hefur
farið fram
Undirritaður hefur unnið að útfærslum á
þessari
hugmynd og leitar nú að áhugasömum fjárfestum til að koma að
þessu. Talsverð vinna hefur verið lögð í vinnu að
staðarvali, gerð útlínu hafnar, dýptarmælingar, kortagerð og
við að útfæra tölfræðilegar upplýsingar.
Rétt staðarval skiptir
miklu máli
Þegar litið er til staðsetningar
umskipunarhafnar
er margs að gæta. Stórskipahafnir eru ekki byggðar hvar sem er.
Dýpi þarf að vera nægjanlegt því stærstu gáma-flutningaskip í
dag rista ansi djúpt fullhlaðin og því þarf að reikna með 30
metra dýpi. Landrýmið einnig að vera nokkuð. Þá er
æskilegt að alþjóðaflugvöllur sé í næsta nágrenni sem og
vinnuafl.
Hugmyndir
um höfn sunnan Langanes óskynsamleg
Hugmyndir um höfn í Finnafirði, sunnan
Langanes, er algjörlega út í bláinn. Fólk hefur verið dregið
á asnaeyrum þar af fólki sem ekkert vit hefur á hlutunum og
hugsar bara um eigin hagsmuni. Slæmt er þegar fólk í opinberri
þjónustu tengir sig við svona vitleysu.
Helstu ókostir varðandi höfn í Finnafirði
eru
eftirfarandi:
1) Fara þarf í svo stórfellda uppbyggingu á
svæðinu að útilokað telst vera að mati yfirvalda.
2) Fjölga þarf íbúum úr 500 í 5000. Mikið
fámenni er á svæðinu, byggja þarf upp heila byggð frá grunni
með allri þjónustu til að hægt sé að þjóna höfninni.
3) Semja þarf við marga landeigendur og
greinilega
þegar farið að valda vandamáli.
4) Byggja þarf upp nýjan alþjóðlegan
flugvöll.
5) Byggja þarf risahöfn á afskekktum og
einangruðum stað.
6) Búið er að benda á ýmsa annmarka á
skipulaginu.
7) Staðsetning á Finnafirði er mikið úr
alfaraleið
8) Finnafjörður er meira flói en fjörður og
þarf
gríðarmikil mannvirki til að verja hann
9) Fyrirhuguð höfn er mjög opin fyrir
úthafsöldu
og því erfitt að verja hafnarmannvirki og skip. Vinna við
umskipun er með tölvustýrðum tækjum sem krefjast stöðugleika
og mikillar nákvæmni.
10) Hugmyndir um nokkra kílómetra
varnargarða eru
mjög óraunhæfar og þarf mikið magn af efni, sem fer allt niður
á 50-60 m dýpi!
11) Takmarkað vegasamband er við umheiminn.
12) Þá er dýpi þar mjög takmarkað.
Hvað
það varðar þá þarf að ráðast í miklar framkvæmdir við
að sprengja og fjarlægja efni af hafsbotni. Að mínu mati er
óraunhæft að ráðast í slíka framkvæmd og engin þjóð myndi
fara í hafnargerð við þær aðstæður sem þar eru.
Kostir Loðmundarfjarðar
Hafnargerð og aðstæður í Loðmundarfirði eru
mun ákjósanlegri en í Finnafirði og þar er heppilegri
staðsetning fyrir umskipunarhöfn:
A) Um 10.000 manna byggð er í næsta nágrenni
með
góða reynslu í stóriðjuframkvæmdum (Í Fjarðabyggð þann 1.
maí 2011 voru samtals 4573 íbúar búsettir
(Norðfjörður, Mjóifjörður, Eskifjörður, Reyðarfjörður,
Fáskrúðsfjörður, Stöðvarfjörður. Á Egilsstöðum og
Fljótsdalshéraði búa um 3.406 (1. desember 2010) og Seyðisfirði
rúmlega 600. Svo eru nokkur hundruð íbúar í jaðarbyggðum eins
og Borgarfirði eystri, Fljótsdal m.m.)
B) Alþjóðlegur flugvöllur með alla þjónustu
er
rétt hjá svo að ekki þarf að fara í dýrar framkvæmdir til að
byggja upp nýjan flugvöll.
C) Nóg er til af húsnæði á öllum þessum
stöðum. Mikið atvinnuleysi er núna á Íslandi og mikill vandi
hjá fólki á Stór-Reykjavíkursvæðinu að eignast húsnæði.
D) Loðmundarfjörður er skjólgóður og lokaður
fjörður og allt aðrar aðstæður til að nota sem umskipunarhöfn
þar sem mikils stöðugleika er krafist við umskipun á
farmi.
E) Mun ódýrara er að dýpka og byggja upp í
Loðmundarfirði. Kanna þarf dýpi á klöpp í firðinum en
undirbúningur þess er hafin. Er það gert með bergmálsmælingum.
F) Svæðið er mjög afmarkað og auðvelt að
loka
af. En svona hafnarsvæði yrði frí-höfn, ekki ósvipað og
Keflavíkurflugvöllur var á sínum tíma. (Best ef aðeins eitt
ráðuneyti færi með
umsýslu
svæðisins, skipulagsmál og annað.)
G) Fáir eigendur sem þarf að semja við.
H) Fjörðurinn er kjörin fyrir stórskipahöfn. Hafnarbakkar
geta verið um 6 km hvoru megin
og
bil á
milli um 1-2 km. Þarna er nægilegt pláss fyrir alla þá starfsemi
sem höfnin myndi koma til með að þurfa í nánustu framtíð.
I) Olíubirgðastöð fyrir hugsanlega
nýjar
olíuvinnslu út af Austfjörðum.
J) Eins og allir firðir á Austurlandi,
þá
hafa þeir mótast af skriðjökli. Loðmundarfjörður er grafinn út
af tveim skriðjökuls tungum. Botnlag er V laga og eftir að
síðustu ísöld lauk fyrir um 10.000 árum, að þá hefur
fjörðurinn smá saman verið að fyllast upp af jarðvegi.
Því er öll hafnargerð auðveldari í framkvæmd.

K) Samfara uppbyggingu í Loðmundarfirði,
þyrfti
að klára þær hugmyndir sem uppi hafa verið um samtengingu fjarða
með jarðgöngum.
Samgöngur á landi
Þá er gert ráð fyrir að lestarspor verði
lagt
frá höfninni til Egilstaða um göng og svo þaðan til Reykjavíkur
og jafnvel til Keflavíkur. Áætluð vegalengd er 450 til 500 km. ef
farið er stystu leið norðan jökla og vestan Langjökuls til
Reykjavíkur.
Hér er gróf hugmynd.

Áhugasamir aðilar óskast í
undirbúningsfélag
Undirritaður hefur í nokkur ár ferðast
mikið um
Kína og helstu nágrannalönd þeirra og þekkir vel menningu
og mannlíf á svæðinu. Fyrir tilstilli vina sat ég mörg
kvöldverðarboð
Kínverskra þingmanna í vor, fyrir árlegt flokksþing, og var
það áhugi þeirra á
Íslandi
og umskipunarhöfn þar sem var tilefni þessara boða. Gerði
ég þetta nánast nauðugur en
hafði
þó gaman af.
Kínverjar vilja að frumkvæði komi frá
Íslendingum í þessu máli.
Hugsanlega undirbúningsfélag sem væri með
aðkomu
sveitarfélaga og samþykki ríkisins.
Þá sé ég fyrir mér að stofna félag með
Kínverjum og hugsanlega öðrum Asíu-þjóðum um byggingu og
rekstur þessarar hafnar. Gæti
það
orðið að veruleika nánast strax eftir að félag hefði verið
stofnað á Íslandi.
Fjármagnskostnaður er ekki vandamál ef
þetta
er byggt í samvinnu við Kínverja. Hugsanlega má semja þannig við
kínverska fjárfesta að Íslendingar eignist höfnina með
öllum mannvirkjum á einhverjum áratugum.
Nú er auglýst eftir áhugasömum í þetta
verkefni.
Guðmundur H Bjarnason
frost@fastmail.fm
------------
Austurglugginn 22. júlí
2011 Umfjöllun um höfn í Loðmundarfirði. pdf skjal.
Loðmundarfjörður
A3 Teikning í góðri upplausn. pdf skjal.
Tenglar á ýmsar skýrslur.
Umskipunarhöfn
á Íslandi fyrir Íshafssiglingar, fjórir mögulegir staðir
Fyrir
stafni haf
Skýrsla
utanríkisráðuneytisins - Ísland á norðurslóðum
Möguleikar
á umskipunarhöfn á Íslandi
Jarðgöng
á Austurlandi
|
|